Vill að grímseyingar verði fluttir í land

 

 

Trausti Valsson arkitekt og skipulagsfræðingur, ræddi þá skoðun sína í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut í gærkvöld að hann teldi nær að ríkið tryggði íbúum flutningsstyrki svo þeir gætu flutt í land fremur en að kosta til opinberu fé til áframhaldandi búsetu.

Hér má heyra viðhorf skipulagsfræðingsins til málsins.

Samkvæmt svari forsætisráðherra nemur kostnaður við aðgerðir til að styðja við byggð í Grímsey 60 til 70 milljónum. Heiða Kristín Helgadóttir spurði ráðherrann.

Akureyri vikublað greindi í ársbyrjun 2015 fyrst fjölmiðla frá þeim mikla vanda sem blasir við Grímseyingum vegna skuldsetningar kvóta. Útgerðarfélög skulda Ísandsbanka milljarða og staða eyjunnar er viðkvæm.

Meðal þess sem styrkur ríkisins á að renna til er styrking útgerðar og skoðun á hagkvæmni þess að lækka húshitunarkostnað í eynni auk þess að koma Grímsey inn í verkefnið Brothættar byggðir.