Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsleiðtogi á Akranesi skorar á Framsóknarflokkinn að láta sverfa til stáls og leggja fram frumvarp á Alþingi um afnám verðtryggingar.
Þetta kom fram í samtali hans við hagfræðingana Ólaf Arnarson og nafna hans Ísleifsson í þættinum Ólafarnir á Hringbraut í gærkvöld.
Með þessu móti, segir Vilhjámur, fæst úr því skorið hvaða þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu treysta sér til að standa með heimilum og fyrirtækjum í landinu.
Ólafarnir eru frumsýndir á Hringbraut á fimmtudagskvöldum en einnig sjáanlegir hér á hringbraut.is.