Guðmundur segir forystuna ætla að breyta skipulaginu þannig að flokkurinn verði boðhlaupssveit. Þingflokkurinn skiptist á að hlaupa með keflið og skiptist á að sinna embættum formanns og þingflokksformanns. Stjórnarformaðurinn verði síðan kostinn úr röðum flokksmanna. Þannig auki flokkurinn breiddina og dreifi ábyrgðinni á milli flokksmanna.
Guðmundur segir breytinguna eiga að styrkja flokkinn. Skipurit flokksins sé í raun öfugur pýramíði. Með breytingunni minnki áherslan á hverjir séu í embættum og hægt sé að einbeita sér að málefnunum.
Tillögurnar fá góðar undirtektir
Staða Bjartrar framtíðar hefur verið erfið undanfarið. Fylgi flokksins hefur verið í stöðugu falli í skoðanakönnunum síðan í mars. Þá hefur Heiða Kristín Helgadóttir, einn stofnenda flokksins og varaþingmaður, gagnrýnt formann flokksins harðlega.
Flokksmenn sem fréttastofa hefur rætt við í dag taka vel í tillögur Guðmundar.
Margrét Marteinsdóttir, stjórnarformaður flokksins, segir tillöguna hafa slegið sig strax ágætlega. „Það eru að minnsta kosti fyrstu viðbrögð“. Tillöguna þurfi hins vegar að bera undir allt fólkið sem hittist einmitt næsta fimmtudag.
Brynhildur Pétursdottir segir tillöguna í anda flokksins. Tillagan miði að því að ná formannsembættinu niður af einhverjum stalli. Flokkurinn þurfi á breytingum að halda og þetta gæti verið rétt næsta skref. Undir þetta sjónarmið tekur þingflokksformaðurinn, Róbert Marshall.
„Ég held að þetta sé bara ágætishugmynd. Þetta er auðvitað eitthvað sem hefur sprottið upp úr umræðum innan flokksins síðustu daga“ segir Róbert. Þessar breytingar væru mjög í anda flokksins.