Helgi Hjörvar formaður þingflokks Samfylkingarinnar ætlar að beita sér fyrir því að Alþingi rannsaki hvernig sala Landsbankans á rösklega 30 prósenta hlut í kortafyrirtækinu Borgun fór fram án auglýsingar eða undangenginnar forkönnunar. Kaupandinn var Eignarhaldsfélagið Borgun, en athygli hefur vakið að föðurbróðir fjármálaráðherra á beina aðild að öðru félaginu sem á það.
Það kemur væntanlega í hlut Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis að skoða söluna og kalla eftir öllum þeim upplýsingum sem liggja fyrir um hana, en nefndadagar eru á Alþingi alla næstu viku.
Salan hefur mjög verið gagnrýnd í opinberri umræðu síðustu daga og henni líkt við vinavæðingu fyrri tíma, en það sem hefur ekki síst kynnt umtalið að undanförnu er 800 milljóna króna arðgreiðsla Borgunar til hluthafa sinna tæpu ári eftir söluna, en 250 milljónir af þeirri upphæð renna til nýrra eigenda sem eignuðust hlut sinn sem fyrr segir án auglýsingar að hálfu ríkisbankans.
Eignarhaldsfélagið Borgun greiddi 2,2 milljarða króna fyrir hlutinn í Borgun en á þessari stundu liggur ekki fyrir hvernig þau kaup voru fjármögnuð.
Lesa má kostulegan pistil Guðmundar S. Brynjólfssonar um Borgunarmálið hér til hliðar á forsíðunnu á hringbraut.is.