Dýraverndunarsamband Íslands vill að Matvælastofnun fái heimild til að fella niður opinberar greiðslur til bænda sem ítrekað brjóta lög um velferð dýra.
Hallgerður Hauksdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands segir m.a. á Hringbraut í kvöld að viðhorf innan Bændasamtakanna og hjá Landssamtökum kúabænda um að slík refsing verði leyfð hafi verið jákvæð á fundi sem hún sat með bændum fyrr í sumar. Hins vegar hafi ekki tekist að koma ákvæðinu inn í búvörulögin og samningana en nú sé reynt að gera það þar sem þeir eru til meðferðar á Alþingi. Hallgerður segir að lögfræðingar í stjórnsýslunni hafi þó talið að óheppilegt sé fyrir MAST að hafa þá þrjár leiðir til að mæta dýraníði á býlum en nú er hægt að beita sektum á tvenna vegu.
„Við viljum taka styrki af dýrahrottunum, þetta snýst ekki um að það þurfi að endurnýja innréttingar innan búa eða annað slíkt. Þannig mál eru annars konar. Sumt fólk á hreinlega ekki að hafa dýr í umsjá sinni“. Aðspurð hvort afturköllun styrkja í refsingarskyni sé ekki hið sama og að viðkomandi bóndi bregði búi og framtíð dýranna í óvissu, segir Hallgerður að svo sé og að það sé helsta áhyggjuefnið verði slíkar refsingar leyfðar hvað yrði um skepnurnar. „líklega yrði þeim bara slátrað en við myndum vilja að aðrir bændur gætu tekið eitthvað af þeim og gefið gott atlæti eftir slæma meðferð“, segir Hallgerður.