„viljum endurnýja umboðið“

Leikverkið Álfahöllin verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á laugardag.  Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og höfundur verksins er gestur Lindu Blöndal á Þjóðbraut í kvöld. “Við viljum endurnýja umboðið”, segir Þorleifur m.a. um hlutverk Þjóðleikhússins fyrr og nú.

Þorsteinn Víglundsson, félags og húsnæðismálaráðherra ræðir umdeilt frumvarp um jafnlaunavottun. Samkvæmt því verða fyrirtæki með 25 eða fleiri starfsmenn skyldug með lögum að fá  til jafnlaunavottun.  Með því á að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Hann segist fullviss að málið fái stuðning á Alþingi. 

Starfsemi kísilmálmverksmiðjunnar United Silicon í Helguvík hefur snúist upp í gríðarstórt vandamál í stað þess að vera sú lyftistöng sem hún átti að vera fyrir bæjarfélagið.

Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar segir á Þjóðbraut í kvöld að ekki komi til greina að byrjunarörðugleikar verksmiðjunnar varið mikið lengur en forstjóri Silicon lýsti á fundi í gær að þeir gætu þurft að taka eitt til tvö ár. Friðjón segir það allt of langan tíma. „Við getum ekki lagt það á íbúna“, segir hann. Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG mæta einnig í þáttinn í kvöld.