Vilja úttekt á stöðu bóndakvenna

Landssamtök sauðfjárbænda rituðu í dag undir samning við RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands, um sérstaka fræðilega úttekt á stöðu kvenna í sauðfjárrækt í þeim tilgangi að kanna hvort halli á konur í greininni og ef svo er, hvaða leiðir megi finna til að bæta þar úr.

Í tilkynningu frá samtökunum í dag segir að ljóst sé að víðast þar sem hjón búi með sauðfé leggi bæði af mörkum til búskaparins: \"Ýmsar vísbendingar eru þó um að kynjahalli sé til staðar innan sauðfjárræktar á Íslandi.  Þótt tveir af fimm stjórnarmönnum í Landssamtökum sauðfjárbænda séu konur hafa hins vegar mun fleiri aðalfundarfulltrúar verið karlar og vísbendingar eru um að kynjahlutföllin séu konum í óhag á ýmsum fleiri sviðum,\" segir ennfremur í tilkynningunni.

Sterk rök hnígi að því að innsýn inn í stöðu kvenna í greininni geti gefið haldbærar vísbendingar um hvernig megi vinna að umbótum í sauðfjárrækt, en ekki síður í byggðamálum, nýliðun, nýsköpun og í því að tryggja réttindi bænda: \"Því hafa Landssamtök sauðfjárbænda, í samvinnu við RIKK - Rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands hafið vinnu að grunngreiningum á stöðu kvenna í sauðfjárrækt.\"

Verkefnisstjóri af hálfu RIKK er Kristín I. Pálsdóttir en Svavar Halldórsson er verkefnisstjóri af hálfu Landssamtaka sauðfjárbænda. Til viðbótar verður, ef þurfa þykir, mótaður rannsóknarrammi fyrir stærra framhaldsverkefni þar sem ítarlegri rannsókn verður gerð á stöðu kvenna í sauðfjárrækt.

Verkefnið ber yfirskriftina Úttekt á stöðu kvenna í sauðfjárrækt. Í því felst að gera úttekt á stöðunni miðað við fyrirliggjandi gögn og gloppugreining á þekkingu á stöðu kvenna í sauðfjárrækt. Stefnt er að því að skila niðurstöðum, um miðjan nóvember, eða eins fljótt og auðið er, svo hafa megi þær til hliðsjónar við gerð nýs sauðfjárræktarsamnings og væntanlegar breytingar á félagskerfi landssamtakanna.