Vilja útrýma launamun með lögum

Frumvarp til að útrýma kynbundum launamun á Íslandi, verður fyrsta þingmál Viðreisnar nái hann inn á þing. Í gær kynnti flokkurinn frumvarpið sem er harla róttækt miðað við aðrar áherslur flokksins og ásýnd hans almennt. Frumvarpið rímar hins vegar ágætlega við lög sem tóku gildi árið 2013 um jafnrétti í stjórnum fyrirtækja. Þar beitti ríkisvaldið sér í að auka jafnrétti í atvinnulífinu og kveða login á um lágmarkshlutfall hvors kyns í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn.

Tillaga Viðreisnar beinist að fyrirtækjum með 25 starfsmenn eða fleiri og gengur því harla langt. Launamunur stendur nú í stað í 10 prósentum. Fyrirtækjunum mun verða skylt að undirgangast “jafnlaunavottun” meðfram ársreikningum.

Fyrirtækin skulu senda ársreikningaskrá jafnlaunavottun samhliða ársreikningi hverju sinni,  segir í frumvarpinu.

“Jafnlaunavottunin” verður gefin út af Staðlaráði Íslands.

Refsingar við broti á þessum lögum eru til dæmis að skylt verður að gera opinbert ef fyrirtæki eða stofnun greiðir starfsmönnum sínum ólík laun vegna kynferðis og brýtur þannig gegn lögum. Einnig verði Ársreikningaskrá heimilt að leggja sektir á fyrirtæki eða stofnanir vanrækja að senda ársreikningaskrá með jafnlaunavottun.

 Frumvarpið boðar einnig bann gegn launaleynd: “Starfsmönnum skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef þeir kjósa svo.”, segir m.a. í frumvarpinu.

Reglur um kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja hefur ýtt undir fjölgun kvenna í stjórnum.

Sem flokkur með atvinnurekendabra -, forystumenn úr atvinnulífinu má telja ansi róttækt að boða þessa þvingunarleið sem fyrsta verk á komandi þingi.