Vilja útrýma níði og ranghugmyndum

Samtökin 78 ætla að standa fyrir opinni hinsegin fræðslu næstkomandi sunnudag til að blása á þá ríkjandi fordóma sem hafa verið nokkuð áberandi í umræðunni á Íslandi um mismunandi kynvitund fólks.


Fræðslustarf samtakanna komst í hámæli nýverið eftir að bæjarstjórn Hafnarfjarðar afréð að efla til muna hinsegin fræðslu í skólum bæjarins við litla hrifningu nafntogaðra manna á borð við Gylfa Ægisson tónlistarmann sem farið hefur mikinn í andmælum sínum við fræðslu og fyrirferð hinsegin fólks í samfélaginu. Þá er einnig vísað til þess orðalags sem hefur verið látið viðgangast á Útvarpi Sögu í garð fólks með ólíka kynvitund á síðustu vikum og mánuðum, en stöðin hefur verið vænd um að halda úti rætnum hatursáróðri í garð hinsegin fólks.


Í kjölfar þessa ákváðu forráðamenn Samtakanna 78 að nota tækifærið til að herja á alla þá fordóma sem enn ríkja í garð hinsegin fólks í landinu og segir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir fræðslufulltrúi samtakanna að fræðslan muni fyrst og fremst snúast um hvað það er að vera hinsegin og hvernig hinsegin flóran er margbreytileg og breiðari en margir ef til vill halda.


Sunnudagurinn næsti er valinn því hann er alþjóðlegur dagur gegn hinsegin fóbíu og hefur hann alltaf verið haldinn 17. maí ár hvert um áratugarskeið.