Krabbameinsfélag Íslands skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir forvörnum sem felast meðal annars í hvatningu til heilbrigðra lífshátta. Mikilvægt er að yfirvöld sýni frumkvæði og stuðli þannig að því að færri greinist með krabbamein, samfélaginu öllu til hagsbóta.
Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn er í dag, 4. febrúar - og er áskorunin sett fram í tilefni hans. Hún er sett fram í mörgum liðum, eins og eftirfarandi tilynning frá félaginu ber með sér:
Krabbameinsfélagið skorar á sveitarstjórnarfólk að gefa lýðheilsu meira vægi og efla forvarnir gegn krabbameinum með því meðal annars að:
- banna reykingar á opinberum svæðum sveitarfélaga
- hvetja til betri nýtingar svæða sem ætluð eru til hreyfingar og útivistar
- hvetja til frekari hreyfingar hjá börnum með því að gefa hreyfingu meira vægi í skólastarfi
- bjóða upp á hollan mat í leik- og grunnskólum
- auðvelda einstaklingum sem búa við þröngan efnahag að stunda fjölbreytta hreyfingu
Krabbameinsfélagið skorar einnig á þingmenn og ríkisstjórn að beita sér fyrir bættri lýðheilsu meðal annars með því að:
- halda áfram þeirri vinnu sem hafin var við krabbameinsáætlun og ljúka henni hið fyrsta
- banna reykingar á almannafæri
- hefja skimun fyrir ristilkrabbameini
- setja skýra stefnu og aðgerðaráætlun í tóbaksvörnum og setja lög um rafrettur
- tryggja að áfengisauglýsingar verði áfram bannaðar og koma í veg fyrir duldar áfengisauglýsingar
Fræðsla um tengsl lífstíls og áhættu á krabbameinum er mikilvægt forvarnarskref. Krabbameinsfélagið hefur unnið fjölbreytt fræðsluefni sem nálgast má hér.