„Við höfum áhuga á að stækka Hlemm með það fyrir augum að geta haft rými bæði fyrir gesti og líka hugsanlega sem bændamarkað í borginni,“ segir Þór Sigfússon, eigandi Hlemms mathallar ehf. í samtali við Morgunblaðið í dag.
Stjórn fyrirtækisins hefur óskað eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um stækkun á byggingu Hlemms um 200 fermetra í austurátt. Þór segir málið þó á byrjunarstigi enda hafi ekki borist svar frá Reykjavíkurborg ennþá. „Við sendum þetta inn í því ljósi að við vitum að borgin er að hugsa sér breytingar á svæðinu,“ segir hann.
Þór er einnig eigandi Mathallarinnar á Granda, en þar opnaði fiskmarkaður um helgina. „Þar erum við að kynna sjávarútveginn en við viljum með sama hætti gera eitthvað af þessu tagi á Hlemmi,“ segir hann og bætir við að viðtökur vegna fiskmarkaðarins hafi verið góðar.
„Þetta segir okkur að við eigum að geta haldið áfram með þessar mathallir með því að tengja okkur betur við grunninn eins og landbúnaðinn, bændur og sjávarútveginn. Við höfum áhuga á að skoða eins konar gróðurhús í miðborginni sem ég held að geti verið skemmtileg viðbót í borgarlífið. Við erum alltaf að hugsa eitthvað. Það verður bara að koma í ljós hvort það er áhugi á þessu,“ segir Þór að lokum.