Vilja skýringar á yfirlýsingu guðlaugs þórs

Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður Vinstri grænna og varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis segir utanríkisráðherra ekkert samráð hafa haft við nefndina áður en hann tilkynnti opinberlega um stuðning Íslands við leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela.
 

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sendi út yfirlýsingu í gær á Twitter um stuðning Íslands við Juan Guaidó og hann sagði í fréttum sjónvarps í gærkvöld að hann vonaðist eftir því að kosið yrði í Venesúela sem fyrst. Rósa Björk segir nefndina hafa fengið minnisblað í fyrradag en ekki um yfirlýsinguna sjálfa, og tölvupóst undir kvöld í gær.

Rósa segir að það sé ýmislegt í yfirlýsingunni sem þurfi að útskýra nánar og fara yfir. „Þess vegna höfum við kallað eftir ráðherra á okkar fund á morgun í utanríkismálanefnd og hann hefur tekið vel í það. Þar munum við fara yfir þetta mál og þessa yfirlýsingu og hvað hún í raun og veru inniber,“ segir Rósa Björk. 

Nánar á

 

http://www.ruv.is/frett/vilja-skyringar-a-yfirlysingu-gudlaugs-thors