Vilja skera niður skuldir og skatta

Hreggviður Jónsson, formaður Viðskiptaráðs Íslands og aðrir forkólfar þess segja að afloknu sex ára aðhaldstímabili í ríkisfjármálum sem hafi getið af sér efnahagslega uppsveiflu sé nú í fyrsta skipti í langan tíma svigrúm til að taka til í opinberum rekstri. Þrír valkostir standi til boða.

\"Hægt er að greiða niður opinberar skuldir, lækka skatta eða auka opinber útgjöld. Sú leið sem stjórnvöld velja mun ráða miklu um þróun rekstrarumhverfis fyrirtækja og lífskjara almennings á næstu árum. Fjárlagafrumvarp haustsins mun veita mikilvæga vísbendingu um framhaldið,\" segir í tilkynningu frá ráðinu í gær.

Viðskiptaráð vill að eftirfarandi leiðir séu skoðaðar, ellegar hafðar í huga: 

\"Uppsveifla er hafin í efnahagslífinu sem mun skapa verulegt svigrúm í opinberum fjármálum á næstu árum. Svigrúm í opinberum rekstri verður komið í 100 milljarða króna árið 2018 samkvæmt áætlun. Skynsamlegast væri að verja þessu svigrúmi í niðurgreiðslu opinberra skulda og rétt útfærðar skattalækkanir.Vaxtagjöld ríkissjóðs eru 30% hærri á Íslandi en í Grikklandi sem hlutfall af landsframleiðslu,\" segir í tilkynningu Viðskiptaráðs Íslands.