Vilja sjálfstætt eftirlit með lögreglu

Þingflokkur Pírata hefur lagt fram ítarlegt þingmál um sjálfstætt eftirlit með starfsháttum og starfsemi lögreglu. Með tillögunni er lagt til að unnið verði lagafrumvarp um sérstaka stofnun á vegum Alþingis sem hafi sjálfstætt eftirlit með starfsemi og starfsháttum lögreglu. Við undirbúning frumvarpsins beri líta til eftirfarandi verkefna slíkrar stofnunar; að hefja athugun að eigin frumkvæði, að taka við kærum einstaklinga sem telja lögreglu hafa brotið á réttindum sínum, að rannsaka meint brot lögreglumanna í starfi, að rannsaka tilkynningar innan úr lögregluliðum um einelti og kynferðislega áreitni - og að rannsaka upplýsingar frá nafnlausum afhjúpendum innan lögreglu eða stjórnsýslu.


Píratar telja einnig að meta eigi hvort stofnunin geti einnig farið með ákæruvald í slíkum eftirlitsmálum. Í frumvarpinu verði kveðið sérstaklega á um sjálfstæði stofnunarinnar.


Síðar segir í kynningu Pírata á þingmálinu: " Vegna þeirra mikilsverðu hagsmuna sem almenningur hefur af trúverðugleika rannsókna á meintum brotum lögreglu og lögreglumanna telja Píratar skynsamlegt að koma á fót eftirlitsstofnun sem sérstaklega er falið að hafa eftirlit með lögreglu og rannsaka kærur og brot lögreglumanna gegn lögum, verklagsreglum og siðareglum lögreglumanna. Til að vernda þennan trúverðugleika er nauðsynlegt að stofnunin sé aðskilin frá lögreglunni og sjálfstæð í störfum sínum. Flutningsmenn tillögunnar telja að vel fari á því að eftirlitsstofnun af þessu tagi heyri undir Alþingi, sem hefur það stjórnskipulega hlutverk að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu."