Hagsmunasamtök heimilanna hafa skorað á Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra að standa að gerð rannsóknarskýrslu á þeim ákvörðunum sem voru teknar og þeim aðgerðum sem farið var í gagnvart heimilum landsins eftir hrun.
Hagsmunasamtök heimilanna beina því enn fremur til alþingismanna og annarra sem eiga að láta hagsmuni almennings sig varða að styðja og berjast fyrir rannsókn á því sem gert var eftir hrun, að því er segir í tilkynningu samtakanna í dag.
\"Í haust verða liðin 10 ár frá fjármálahruni og kominn tími til að heimilin njóti vafans og fái uppreist æru í baráttu sinni við „kerfi“ sem er þeim vægast sagt fjandsamlegt,\" segir þar áfram - og einnig: \"Það er ljóst að mjög margar af þeim aðgerðum sem farið var í eftir hrun ollu heimilum landsins stórfelldum skaða, skaða sem aldrei hefur verið viðurkenndur, skaða sem aldrei hefur verið metinn, skaða sem enn sér ekki fyrir endann á og heimilin sitja uppi með.
Hrunið sem ekki mátti persónugera með því að nefna neina þá sem léku aðalhlutverkin var persónugert í „Jónum og Gunnum“ þessa lands. Þeim hefur verið refsað og þau hafa borið byrðarnar á meðan afbrotamennirnir sjálfir hafa aðallega þurft að hafa áhyggjur af því að koma hagnaðinum, sem enn streymir til þeirra í gott skjól.\"