Vilja ný úrræði fyrir unga brotamenn

Fimm þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á almennum hegningarlögum sem veita mun dómurum heimild til að dæma unga afbrotamenn í samfélagsþjónustu. Mun ákvæðið ná til afbrotamanna á aldrinum 15-21 árs og taka til skilorðsbundinna dóma.


Markmiðið með umræddri breytingu er að unnt verði að veita ungum afbrotamönnum meira aðhald og koma þannig í veg fyrir að þeir leiðist á braut frekari afbrota. Samfélagsþjónusta geti því komið til áður en gripið verði til hugsanlegrar fangelsisvistar, þegar venjulegur skilorðsbundinn dómur hefur ekki nægt til að leiða viðkomandi á braut löghlýðni. Þannig má líta á úrræðið sem nokkurs konar millistig milli skilorðsbundinna dóma í upphafi brotaferils og óskilorðsbundinnar fangelsisrefsingar á síðari stigum.


Flutningsmenn tillö0gunnar segja það von sína að gildi samfélagsþjónustu með tilheyrandi eftirliti og aðhaldi dragi úr líkum á því að umrædd ungmenni leiðist út á braut frekari afbrota. Mikilvægt sé að slíkur valkostur sé til staðar fyrir dómstóla landsins auk þess sem það sé í samræmi við þróun á Norðurlöndunum þar sem aukin áhersla hafi verið lögð á úrræði til að hvetja ungmenni til góðrar hegðunar og leiða unga afbrotamenn aftur inn á brautir löghlýðni. Flutningsmenn telja nauðsynlegt að leita allra leiða til að draga úr endurteknum brotum hjá ungu fólki og þeim vítahring sem því getur fylgt.