Fjölmenni mótmælti því sem kallað var aðför stjórnvalda að þingræðinu á Austurvelli í dag í tiltölulega góðu vetrarveðri miðað við það sem verið hefur að undanförnu. Mótmælendur kröfðust þess að þing og þjóð hefðu eitthvað um það að segja hvort slíta eigi samningaviðræðum við Evrópusambandið eða ekki, rétt eins og báðir formenn stjórnarflokkanna lofuðu bæði fyrir og eftir síðustu Alþingiskosningar, svo og fjöldi framámanna í Sjálfstæðisflokknum.
Umsókn Íslendinga um ESB-aðild er ennþá í gildi samkvæmt túlkun hæstráðenda innan ESB, en forvígismenn stjórnarflokkanna líta svo á að viðræðunum hafi verið formlega slitið með bænaskjalinu sem Gunnar Bragi Sveinsson sendi forkólfum ESB í síðustu viku. Það er annars algerlega á huldu hvaða lagatæknilegu þýðingu plagg ráðherra hefur eins og fræðimenn hafa rætt um síðustu daga, nokkuð óvissir í sinni sök, enda er ráðslag ráðherra með eindæmum og á sér varla hliðstæðu í lýðræðissögu landsmanna.
Búast má við frekari og fjölmennari mótmælum á Austurvelli næstu daga og vikur og þá virðist einnig vera ljóst að stjórnarandstaðan mun ekki semja um eitt eða neitt við meirihluta þingsins á næstu vikum á meðan ESB-málið fær ekki þinglega meðferð.