Íslenska þjóðfylkingin tilkynnti um framboð sitt í Reykjavík um helgina. Þrjú efstu sætin voru kynnt og helstu stefnumál listans,
Helsta stefnumálið er að draga til baka lóð undir mosku og allar leyfisveitingar vegna viðbyggingar á mosku múslima í Öskjuhlíð, segir í tilkynningu.
Guðmundur Karl Þorleifsson, formaður Þjóðfylkingarinnar, skipar fyrsta sæti listans, Hjördís Bech Ásgeirsdóttir félagsliði skipar annað sætið og Jens G. Jensson skipstjóri það þriðja.
Meðal annars er þéttingu byggðar á kostnað grænna svæða hafnað, endurvekja á verkamannabústaðakerfið og vill fylkingin að stofnanir borgarinnar verði fluttar úr miðborginni.
Þjóðfylkingin hafnar borgarlínu en vill byggja mislæg gatnamót í staðinn.