Fyrirtækið Iceland Resources hefur sótt um leyfi hjá Orkustofnun til að leita að gulli á átta stöðum á Íslandi. Stjórnarformaður fyrirtækisins segir að gull hafi fundist á Íslandi en þó sé óljóst hvort það sé í vinnanlegu magni.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Um er að ræða svæði norðan við Hveragerði, norðarlega í Héraðsflóa við Vopnafjörð og sex aðra staði á landinu. Fáist leyfi til gullleitar verður samkvæmt fréttinni unnið úr upplýsingum sem til nú þegar um svæðin og þau kortlögð. Þá verða tekin yfirborðssýni úr jörðu.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Iceland Resources segir að langan tíma taki að koma námugreftri á fót. Kanadískt námufyrirtæki stendur að fjármögnuninni, en að minnsta kosti átta ár tekur að koma verkefninu af stað.