Frú Ragnheiður, sinnir fólki á jaðri samfélagsins, vill auka þjónustu við heimilislausa og fólk í sprautuneyslu, meðal annars með því að útvega þeim sérstök neyslurými þar sem fólk getur komið með sín eigin efni.
Þetta kemur fram í Reykjavík vikublaði í dag en þar er fjallað um starfsemi þessarar þjónustu fyrir sptrautufíkla sem rekin hefur verið með góðum árangri um árabil. Markmið verkefnisins hefur verið að draga úr skaðsemi lifnaðarhátta jaðarhópa, t.d. sýkingum í sárum og útbreiðslu lifrarbólgu C og HIV með því að auðvelda þeim aðgengi að sárameðferð, hreinum nálum og sprautum og almennri fræðslu um skaðaminnkun. Þannig er hægt með einföldum úrræðum að draga verulega úr skaðsemi þessara lifnaðarhátta og draga úr þörf á dýrari úrræðum seinna meir í heilbrigðiskerfinu.
Þjónustan sem veitt hefur verið er aðhlynning og umbúnaður sára, umbúðaskipti, blóðþrýstingsmæling og almenn heilsufarsráðgjöf. Þá geta einstaklingar sem nota sprautubúnað komið í sjúkrabifreið Frú Ragnheiðar með notaðar nálar og sprautur og fengið hreinar nálar og sprautur í staðinn. Þar eeru einnig afhendar nálafötur og smærri nálabox án kostnaðar til að geyma notuð sprautuáhöld í þar til þeim er fargað.
Nú vilja sjálfboðaliðar og annað starfsfólk í hlutastarfi hjá Frú ragnheiði stíga næsta skref í þjónustunni og koma upp sérstökum föstum neyslurýmum sem yrðu að jafnaði til staðar fyrir fíklana, en sjúkrabifreið Frú Ragnheiðar er ekki alltaf til staðar eins og nærri má geta, en verkefnið byggir á sjálfboðastarfi fjölbreytts hóps einstaklinga sem standa vaktir tvisvar í mánuði, þrjá tíma í senn. Stærsti einstaki hópur sjálfboðaliða eru hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræði nemar. Þá hefur verkefnið á að skipa félagsráðgjöfum, vímuefnaráðgjöfum, sálfræðingum og öðrum vel menntuðum og þjálfuðum sjálfboðaliðum.
Verkefnið er rekið af Rauða krossinum í Reykjavík sem leggur því til verkefnastjóra í 30% starf, sjúkrabifreiðina Frú Ragnheiði auk fjármuna til kaupa á sjúkragögnum, sprautum, nálum, boxum og öðrum aðföngum. Áætlaður heildar rekstrarkostnaður fyrir árið 2015 er átta milljónir króna.