Vilja hafa val um lífeyrissjóð

Meirihluti eða 97 prósent þeirra sem greiða í lífeyrrissjóði vilja hafa val um í hvaða sjóð þeir greiða og geta kosið í sjórn. Samtök um betri lífeyrissjóði lét gera könnun þar sem þetta kom í ljós. Fréttablaðið segir frá þessu í dag. Samtökin eru félagsskapur áhugamanna um lífeyrissjóðakerfið.

Birgir Örn Birgisson, lögfræðingur fer fyrir hópnum. Hann bendir á að lífeyrissjóðsgreiðslur sem dregnar séu af launamönnum á mánuði hafi hækkað umm í 15,5 prósent. „Við erum komin á þann stað að það er orðið tímabært að breyta kerfinu þannig að þeir sem eiga sjóðina, sjóðsfélagar hafi eitthvað um það að segja hvar þeir fjárfesta og hverjir stýra sjóðunum“, segir hann í viðtalinu í blaðinu.

Eins og staðan er nú geta launþegar þó að einhverju leyti valið sér stéttarfélag og þar með mögulega annan lífeyrissjóð en það fer þá eftir kjarasamningum viðkomandi stéttar.

Lífeyrissjóðum hefur þó fækkað hratt og mikið. Þeir voru 88 árið 1991, 62 árið 1999 og komnir í 37 árið 2007 og þá starfandi í 85 deildum. Í árslok 2007 voru 6 sjóðir með rétt rúmlega 65 prósent af heildareignum lífeyrissjóðanna.