Vilja hækka gistináttagjald

Björgólfur Jóhansson, forstjóri Icelandair Group og formaður Samtaka atvinnulífsins, og Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins og formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, verða í ítarlegu fréttaviðtali á Hringbraut í kvöld.

Meðal þess sem verður rætt er staða sveitarfélaga þar sem ferðaþjónusta er mikil en tekjur sveitarfélaga hins vegar fjarri nógu mikil til að vega upp á móti kostnaði sveitarfélaga.

Björgólfur og Grímur vilja að gistináttagjaldið verði hækkað og að hluti þess renni til sveitarfélaganna.

Margt annað fréttnæmt kemur fram í fréttaviðtalinu sem verður í Þjóðbraut milli klukkan 21:00 og 22:00 í kvöld.