Vilja geta heimsótt leiði sonar síns

Hjón frá Georgíu berjast fyrir að fá dvalarleyfi hér á landi svo þau geti heimsótt leiði sonar síns í Gufuneskirkjugarði. Þau eignuðust annað barn janúar og segja að samkvæmt lögum megi ekki vísa barni úr landi sem hefur búið hér óslitið frá fæðingu. Hjónunum hefur alls þrisvar verið synjað um bæði hælis-og dvalarleyfi.

Ítarlega er fjallað um málið á Vísi.

Þau Ivane Broladze og Marika Chukhua sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi í júní 2017 en þá var Marika ólétt af fyrsta barni þeirra. Við læknisskoðun kom í ljós að fóstrið var með alvarlegan fósturgalla og fæddi Marika andvana barn á tuttugustu viku meðgöngu í október sama ár.

Útlendingastofnun synjaði þeim um hælis- og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða í febrúar 2018 og staðfesti Kærunefnd útlendingamála hana. Þeim var þá brottvísað til Georgíu. Í nóvember í fyrra komu þau aftur og sóttu um vernd í annað sinn. Þau segja að þau hafi ekki getað afborið að vera svo langt frá gröf barns síns í Gufuneskirkjugarði. Ivane segir:

„Við verðum að geta heimsótt leiði sonar okkar, það er eðlilegt, þetta er sonur okkar.“ 

Aftur var þeim synjað um alþjóðlega vernd en þá varð Marika ólétt á ný. Ákveðið var að fresta brottvísuninni eftir að bréf kom frá Kvennadeild Landspítalans að fresta bæri brottvísuninni þar til barnið væri fætt, enda um að ræða áhættumeðgöngu og þau undir miklu álagi.

Ítarlega er fjallað um málið á Vísi og í fréttum Stöðvar 2.