Vilja frí á fullveldisdeginum

Þingmenn Miðflokksins og einn þingmaður Flokks fólksins hafa lagt fram lagafrumvarp á Alþingi um fjölgun lögbundinna frídaga. Þeir vilja að 1. desember verði hér eftir frídagur til að minnast þess að Ísland varð fullvalda ríki 1. desember fyrir hundrað árum.
 

Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til þess að fjórir dagar séu lögbundnir frídagar fyrir utan helgidaga þjóðkirkjunnar. Þetta eru sumardagurinn fyrsti, baráttudagur verkalýðsins 1. maí, frídagur verslunarmanna og þjóðhátíðardagurinn 17. júní. Flutningsmenn segja að enginn þessara daga hafi haft í för með sér jafnmiklar grundvallarbreytingar á sögu og lífi íslensku þjóðarinnar og fullveldisdagurinn 1918 „dagurinn sem markaði fullnaðarsigur í sjálfstæðisbaráttu Íslending“. Þeir segja að með því sé ekki gert lítið úr sögu eða mikilvægi þessara lögbundnu daga sem sé að sönnu ærið. Flutningsmennirnir telja þó eðlilegt og rétt að fullveldisdagurinn 1. desember verði gerður að frídegi á sama hátt og mikilvægis hans þannig minnst um alla framtíð, að því er fram kemur í samantekt RÚV um þingmálið.