Yfirgnæfandi meirihluti íbúa Reykjavíkur eru jákvæðir í garð ferðamanna og finnst ekki of mikið af þeim í höfuðborginni. Íbúar í Árbæ, Breiðholti, Grafarvogi og Grafarholti vilja þó fá fleiri ferðmenn til að heimsækja hverfin sín, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Höfuðborgarstofu.
Alls eru 85 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins jákvæð í garð ferðamanna. Fimmtungi íbúa miðbæjarins finnst þó of margir ferðamenn í sínu hverfi á sumrin, en um þriðjungur í úthverfum borgarinnar telur of fáa ferðamenn vera í sínu hverfi. Þetta kemur fram á fréttavef ruv.is.
30 til 40 prósent íbúa í Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti segja of fáa ferðamenn leggja leið sína í sitt hverfi. Sé fólk hins vegar spurt um fjölda ferðamanna í miðbænum eru það helst íbúar í póstnúmeri 103, Vesturbæ og Efra-Breiðholti sem telja of marga ferðamenn í miðbænum á sumrin.
Spurningarnar voru lagðar fyrir 150 til 170 manns í öllum hverfum Reykjavíkur og jafn margir í hverju og einu nágrannasveitarfélagi borgarinnar, úrtakið var þó stærra í 101 Reykjavík, 500 manns.