Vilja færa milljarða á milli tekjuhópa

Þingsályktunartillaga er nú í meðförum Alþingis. Þar er ályktað að fela fjármála- og efnahagsráðherra að leggja fram frumvarp fyrir lok ársins um að mánaðartekjur einstaklinga undir 300 þúsund krónum verði undanþegnar tekjuskatti.

Ólafur Ísleifsson hagfræðingur og þingflokksformaður Flokks fólksins er flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Hann mætir í þáttinn 21 til Lindu Blöndal en ásamt honum flytja allir aðrir liðsmenn Ólafs úr Flokki fólksins tveir aðrir þingmenn úr Miðflokknum

Í þessari tillögu eru settar fram opinberar tölur og þróun skattbyrðis. Notast er við nýja skýrslu dr. Hauks Arnþórssonar sem hann vann fyrir þingflokk Flokks fólksins.

Í tillögunni eru birt tafla yfir þróun skattbyrði fyrir árin 2000–2017. Miðað við það hefur skattbyrði hátekjufólks hefur lækkað um -3,3 prósent, skattbyrði meðaltekjufólks og lægri tekjuhópa hefur hækkað á bilinum  15–45 prósent  og skattbyrði hjá lægstu tekjuhópum hefur aukist á bilinu um 82–273,6 prósent samkvæmt því sem kemur fram í þesssu þingskjali og þar er vitnað í OECD tölur.

\"\"

Lagt er til að tvöfalda skattleysismörkin en halda skattþrepum óbreyttum. Persónufrádráttur verði stiglækkandi eftir því sem tekjur eru hærri og falli alveg niður við 970 þúsund króna markið.

Aðspurður hvers vegna lagt er til 300 þúsund króna viðmið bendir Ólafur á opinberar tölur um lágmarksframfærslu á mánuði sem eru taldar 223 þúsund fyrir einstakling og 495 þúsund fyrir hjón með tvö börn í skóla. Í þessum tölum er ekki húsnæðiskostnaður.

Ólafur segir þetta þingmál innlegg síns flokks og flutningsmannanna fyrir kjaraviðræður framundan. Með henni sé hafnað þeirri leið sem Sjálfstæðisflokkurinn boðar um að lækka tekjuskattsbyrði, hlutfallslega jafnt á alla tekjuhópa.

Aðallega myndi kosnaður við þessar breytinga verða mikill gagnvart sveitarfélögunum, segir Ólafur en þarna sé aðallega verið að tala um millifærslu tekna fyrir ríkissjóð innbyrðis á milli tekjuhópanna í samfélaginu.