Svo að segja bylting hefur orðið í þjónustu við aldrað fólk á Austfjörðum eftir opnun tveggja glæsilegra og afar nútímalegra dvalar- og hjúkrunarheimila á Egilsstöðum og Eskifirði.
Þetta kom fram í þættinum Okkar fólk á Hringbraut í gær, en þar hugar Helgi Pétursson að aðbúnaði og umönnun eldra fólks á landinu öllu. Á Austurlandi leggja menn metnað sinn í að þar fyrirfinnist engir biðlistar í öldrunarþjónustu - og vekur athygli að það hefur gengið eftir. Auk þess kemur þar fram skýr vilji allra þeirra sem með þjónustuna fara að halda öldruðum í heimabyggð sinni.
Helgi og Friðþjófur Helgason hafa á undanliðnum vikum ferðast vítt og breitt um landið til að kynna sér aðbúnað okkar elstu bræðra og systra og munu í næstu þáttum fjalla um fjölmarga þætti sem lúta að öldrunarmálum á lifandi og upplýsandi hátt.
Okkar fólk er á dagskrá Hringbrautar öll þriðjudagskvöld klukkan 20:00 og eru þættirnir endursýndir reglulega daginn eftir og er einnig hægt að skoða þá hér á hringbraut.is.