Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins og formaður Samtaka feðaþjónustunnar gjeldur mjög varhug við lagningu háspennulína þvert og endilangt yfir landið. Hann var gestur viðskiptaþáttarins Hringtorgs í vikunni og sagði þar Huldu Bjarnadóttur að það hefði verið virðingarvert af forráðamönnum Landsnets að bjóða ferðageiranum inn á nýlegan vorfund sinn til að eiga samtalið um orkuflutningana enda hagsmunamál allra að þessir orkuinnviðir séu í lagi.
En grímur kveðst enn sannfærðari eftir þann fund um málið: Ein helsta auðlind ferðaþjónustunnar sé ósnortin náttúra og víðerni og að 80% fólks komi til Íslands vegna náttúru og ósnortinnar víðerna. "Þess vegna höfum við stigið fast niður með það að verið sé að setja upp loftlínur yfir hálendið, " sagði hann í þættinum.
Og Grímur hélt áfram: „Við viljum leggjum til tvær leiðir í staðinn til að hagsmuna sé gætt í þessari mikilvægu grein sem ferðaþjónustan er orðin. Við höfum horft til jarðsrengjalausna, bæði að leggja jarðstreng alveg yfir Sprengisand allan, ekki bara að hluta líkt og menn hafa talað um. Svo mætti skoða að efla byggðalínuna einsog hún liggur fyrir og það hluta með jarðstrengjum og að hluta með loftlínu að hluta en bara efla flutninsgetuna.“
Hér verði að horfa á meiri hagsmuni, en ekki þá minni: „Þetta er sameiginlegt verk okkar að leysa en það verður ekki horft framhjá hagsmunum greinarinnar í ljósi þess hvað greinin er orðin umfangsmikil og mikilvæg fyrir þjóðarbúið og mér finnst það hlutverk mitt sem forsvarsmann í ferðageiranum að benda á þetta," sagði Grímur í þættinum hringtorgi