Starfsauglýsing sem sett var í Facebook-hópinn Bakland ferðaþjónustunnar, þar sem þess er krafist að umsækjendur séu fullbólusettir, hefur vakið miklar umræður í hópnum.
Þar er auglýst eftir þremur reyndum þjónum til að vinna á skemmtiferðaskipinu The Champlain í september en skipið hefur verið á siglingum kringum landið í sumar.
Þetta hefur lagst mis vel í meðlimi hópsins. Þar er meðal annars spurt hvort verið sé „að mismuna fólki eftir því hvort það gefur farið í tilraunabólusetningu eða ekki.“ Þessu svarar Tanja Teresa, framkvæmdastjóri Gáru játandi.
„Má þá líka auglýsa eftir fólki sem er í kjörþyngd eða er á ákveðnum kvíðalyfjum eða er ekki skráð í þjóðkirkjuna? Eða á rafmagnsbíl eða nagar ekki neglur.. þjóðfélagið orðið klikkað,“ er spurt í annarri athugasemd.
„Það er ólöglegt að biðja um heilsu sögu fólks þegar það er ráðið í vinnu. Má þá fólk með HIV veiruna ekki sækja um? Ætlið þið að spyrja um þannig smit? Þetta er tilraunalyf og ef þið hafið tekið eftir að þá eru þeir bólusettu að dreifa þessari pest hægri og vinstri. EN ÞETTA ER ÓLÖGLEGT sem þið eruð að gera!!“
Þessu er andmælt í annarri athugasemd. „Fyrirtæki hefur alveg rétt á þessu alveg eins og fyrirtæki hafa rétt á að fara fram á fíkniefnatest.“