Þetta kemur fram á fréttavef RÚV í dag, en þar greinir frá því að mikill raki sé í íbúðinni og myglusveppur víða. Þar er og sagt að ástand íbúðarinnar sé svo slæmt að hún sé farin að skemma út frá sér og raki kominn í aðrar íbúðir í húsinu. Gluggakistur séu ónýtar, svartar af myglu og bólgnar af bleytu. Sama eigi við um svalahurðina. Kverkar lofts og veggja séu víða svartar af myglu. Sprunga sé í loftinu, sem er svört af myglu og lekur úr henni. Tvær verkfræðistofur hafi gert úttekt á íbúðinni og bent á að hún sé ekki íbúðarhæf. Önnur skýrslan sé dagsett í janúar 2013 og hin í febrúar 2014. Heilbrigðiseftirlitið hafi komist að sömu niðurstöðu um íbúðina: \" ...hún sé ekki íbúðarhæf og hafi áhrif á eignir annarra í húsinu.“
Ekki er gefið upp hvar húsið er í borginni af tillitsemi við eigendur sem óttast að ástand íbúðarinnar hafi áhrif á íbúðaverð. Og þeir hafa fulla ástæðu til þess því nýir eigendur að íbúð í húsinu riftu kaupsamningi þegar þeir sáu myndirnar úr íbúðinni, eins og segir í frétt miðilsins. Margoft hafi verið reynt að fá eigandann til að gera við íbúðina en án árangurs. Skorað hafi verið á hann með vísan í fjöleignalög en hann ekki orðið við henni. Þá hafi verið skorað á hann með vísan í sömu lög að selja íbúðina. Hann hafi ekki orðið við þeirri áskorun heldur.
Eiríkur Gunnsteinsson, hæstaréttarlögmaður, segir við RÚV að næsta skrefið sé að fara fyrir dómstóla með málið og krefjast þess að það verði viðurkennt að honum verði gert að selja íbúðina. Fjöleignalögin opni ákveðna möguleika en skerpa þurfi á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir: \"Það mætti aðeins skerpa á rétti bara venjulegra íbúðareigenda sem eru í sínu eigin húsnæði og standa frammi fyrir því að eign fellur í verði og þau óþægindi auðvitað sem verða af þessu, mögulegu heilsutjóni og skemmdir á íbúð og annað. Það er verið að grípa inni í friðhelgi fólks það er alveg ljóst en það eru þarna almannahagsmunir sem krefjast þess í þessu máli,“ segir lögmaðurinn: \"Mér fannst heilbrigðiseftirlitið einhvern veginn ekki vera tilbúið að gera neitt af sjálfsdáðum og ég hefði viljað sjá kannski önnur viðbrögð hjá þeim,“ bætir hann við á vef RÚV.