Vilja berjast gegn vændi og mansali

Fyrr í sumar var nýtt samstarfsverkefni sem á að nýtast í baráttunni gegn vændi og mansali kynnt á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar í Húsi atvinnulífsins. Verkefnið kallast Vopn gegn vændi og kynlífsmansali og er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Samtaka ferðaþjónustunnar.

Vopn gegn vændi byggir á fræðsluefni fyrir hótel og gististaði um vændi og kynlífsmansal. Markmiðið með gerð efnisins er að starfsfólk innan hótela og gististaða þekki einkenni vændis eða kynlífsmansals og tilkynni það til lögreglu ef grunur leikur á að slíkt fari fram á hótelinu. Fræðsluefnið var unnið af nemum í MPM náminu við Háskólann í Reykjavík í samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborg og Samtök ferðaþjónustunnar.

Að verkefninu unnu þær Stella Sif Jónsdóttir, Ísól Fanney Ómarsdóttir, Þórgunnur Jóhannsdóttir, Ágústa Ýr Sveinsdóttir, Ingunn Þorvarðardóttir, Bryndís Ósk Björnsdóttir. Allar eru þær nemendur við Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er hluti af áfanga sem kallast „Raunhæft verkefni“ og átti verkefnið að snúa að samfélaginu á einhvern hátt. Þær Ingunn og Ísól Fanney kynntu verkefnið fyrir hönd nemendahópsins.

Fræðsluefnið inniheldur fyrirlestur ásamt myndböndum og efni til að hengja upp á hótelum og gististöðum. Í fræðsluefninu er að finna myndbönd sem framleidd voru af sænsku lögreglunni og evrópsku samtökunum Real Stars. Í myndböndunum má sjá ólíkar aðstæður sem geta komið upp og eiga að kenna starfsfólki að bera kennsl á það hvort um sé að ræða kaupendur eða seljendur vændis.
Fyrirtæki í ferðaþjónustu geta nýtt efnið til að fræða sitt starfsfólk. Þá er einnig hægt að fá fyrirlesara á vegum SAF sem fer þá yfir efnið í fyrirlestri.

Jóhannes Þór Skúlason, formaður SAF, ræðir þetta mál og önnur í viðtali við Lindu Blöndal í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld.

\"\"