Vilja banna plaspoka í kjörbúðum

Sjö þing­menn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar hafa lagt fram þings­álykt­un­ar­til­lögu þar sem kveðið er á um að fela um­hverf­is­ráðherra að finna leiðir til að banna plast­poka­notk­un í versl­un­um og gera inn­flytj­end­um og fram­leiðend­um skylt að merkja vör­ur sem hafa í sér plastagn­ir.

Í grein­ar­gerð með álykt­un­inni seg­ir að Íslend­ing­um beri að vera í far­ar­broddi þeirra þjóða sem láta sig vernd­un hafs­ins varða og berj­ast gegn þeim ógn­um sem steðji að líf­ríki hafs­ins, en hér er vitnað til fréttar mbl.is um málið. Bann við notk­un plast­poka í versl­un­um sé vel til þess fallið að draga úr notk­un plasts og vekja at­hygli á þess­um vanda.

Bent er á að plastagn­ir séu óupp­leys­an­leg­ar þegar þær séu orðnar 5 mm litl­ar og brotni því ekki niður í líf­ver­um. Plastagn­ir sé að finna í ýms­um vör­um, til að mynda snyrti­vör­um, tann­kremi og víðar og endi því iðulega í niður­föll­um, vösk­um og sturtu­born­um þaðan sem þær eiga greiða leið út í sjó. Þá finn­ist plastagn­ir í drykkjar­vatni og í sí­fellt rík­ari mæli í fisk­um og öðrum sjáv­ar­dýr­um.

Sam­kvæmt rit­gerð Guðfinns Sig­ur­vins­son­ar um plast­meng­un í hafi er talið að Íslend­ing­ar noti um 70 millj­ón­ir einnota plast­poka á ári, en að meðaltali er hver plast­poki notaður í 25 mín­út­ur áður en hon­um er hent. Þá er gert ráð fyr­ir að ár­lega lendi átta millj­arðar plast­poka í rusl­inu í Evr­ópu, segir í samantektinni á  mbl.is.