Vilja auka áhuga og þekkingu ungs fólks á mat

Matís mun á næstu þremur árum vinna með Háskóla Íslands og 13 öðrum háskólum og stofnunum í Evrópu að verkefninu IValueFood, sem er ætlað að stuðla að bættri heilsu neytenda og styðja við matvælaiðnað í Evrópu. Stefnt er að því að það verði gert með því að bæta þekkingu og áhuga næstu kynslóða á mat og matvælaframleiðslu. Frá þessu er greint á vef Matís.

Til þess að auka við þekkingu og áhuga næstu kynslóða á mat og matvælaframleiðslu verður stuðst við ýmsar nýjar aðferðir og nálganir, þar á meðal eflingu í gegnum leiki, áhugahópa um matreiðslu, tilraunir með nýjar matreiðsluaðferðir, pörun og „vísindi mæta mat.“ Þannig sé ætlunin að móta framvarðarsveit ungra einstaklinga sem miðla gildum um mat.

Háskólarnir og ýmis matvælafyrirtæki og hagsmunaaðilar sem koma að verkefninu munu vinna með ungum neytendum við að skilgreina matvælagildi og verður lögð áhersla á svæði innan Evrópu þar sem auka þurfi áhuga og þekkingu á matvælum til að stuðla að því að næstu kynslóðir taki skynsamlega og upplýstar ákvarðanir í fæðuvali sínu.