Vilja afnema vernd hvíta kjötsins

Forkólfar Félags atvinnurekenda vilja afnema verndartolla á svína- og alifuglakjöti til að efla samkeppni á því sviði, en félkagið leggur þar að auki til miklar breytingar á matartollum hér á landi.

Félag atvinnurekenda stendur fyrir ráðstefnu í dag um tollamálin sem hafa verið mjög í brennidepli síðustu vikur eftir að fjármálaráðherra afnam tolla á innfluttum vörum, öðrum en matvælum. Félag atvinnurekenda vill hins vegar auka samkeppni á matvörumarkaði til muna með því að lækka verndartola á matvælum um að minnsta kosti helming frá því sem nú er. Með þessu vill félagið að innflutningur á matvælum verði aukinn.

Þá leggur félagið til að tollvernd fyrir vörur sem eru ekki framleiddar á Íslandi verði afnuminn og nefir þar til sögunnar geitaost, andakjöt, franskar kartöflur og pasta.

Í skýrslu félagsins um þetta efni sem verður til umfjöllunar á ráðstefnunni í dag eru færð rök fyrir því að stjórnvöld hafi hunsað tillögur stofnana, nefnda og starfshópa á þeirra eigin vegum um að draga úr eða afnema tollvernd á búvörum.