Vilja afnema helgidagafrið

Engin ástæða er til að sekta fólk fyrir að efna til bingós, happdrættis, dansleikja eða annarra samkomna á helgidögum þjóðkirkjunnar að mati þingflokks Pírata sem leggja nú öðru sinni fram frumvarp á Alþingi um brottfall laga um helgidagafrið
 
Markmið gildandi laga um helgidagafrið er að vernda helgihald og tryggja frið, næði og hvíld og takmarka afþreyingu fólks á helgidögum þjóðkirkjunnar.

Flutningsmenn segja í greinargerð að þeir sjái enga ástæðu til að viðhalda lögum sem þessum þar sem gert er ráð fyrir því að hægtt sé að beita sektarákvæðum fyrir eðlilega háttsemi.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að gerðar verði breytingar á lögum um fjörutíu stunda vinnuviku þannig að tekið verði fram að sömu frídagar haldist eftir sem áður. Til frídaga teljist sunnudagar, aðfangadagur jóla frá klukkan eitt, jóladagur, annar dagur jóla, gamársdagur frá klukkan eitt, nýársdagur, skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, annar dagur páska,  uppstigningardagur, hvítasunnudagur, annar dagur hvítasunnu, sumardagurinn fyrsti, 1. maí og 17. júní.

Frumvarpið var síðast lagt fram á vorþingi 2016.