Vilja aðra þjóðaratkvæðagreiðslu vegna brexit

Um þrír af hverjum fjórum meðlimum í Verkamannaflokknum í Bretlandi vilja aðra þjóðaratkvæðagreiðslu vegna fyrirhugaðrar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Jeremy Corbyn, formaður Verkamannaflokksins, er á öndverðum meiði og vill að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu um útgöngu frá árinu 2016 verði virt og að útgöngusamningur Theresu May forsætisráðherra verði lagður fyrir þingið. Kjarninn.is greinir frá.

Kjarninn vitnar í könnun sem framkvæmd var af Queen Mary University of London í síðasta mánuði og The Guardian greinir frá. Þar kemur fram að um 72 prósent flokksmanna Verkamannaflokksins myndu vilja að Corbyn styðji aðra þjóðaratkvæðagreiðslu og að um 88 prósent flokksmanna myndu greiða með áframhaldandi veru Bretlands í Evrópusambandinu.

Þrátt fyrir að meirihluti flokksmanna sé ósammála Corbyn nýtur hann enn stuðnings innan Verkamannaflokksins. Í könnuninni kemur fram að 66 prósent flokksmanna telji hann vera að standa sig vel og að 58 prósent telji hann geta náð betri útgöngusamning en þann sem Theresa May hyggst leggja fyrir þingið nú í janúar.

Í fréttaskýringu Kjarnans kemur fram að áætlað sé að Bretland gangi formlega úr Evrópusambandinu þann 29. mars næstkomandi, óháð því hvort útgöngusamningur liggi fyrir eður ei. Leiðtogaráð ESB hefur þegar samþykkt samninginn en breska þingið á enn eftir að samþykkja hann. Þykir það ólíklegt að hann verði samþykktur og greinir The Guardian frá því að mikilsmetnir aðilar innan bæði Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins vinni nú að því bak við tjöldin að fá ríkisstjórn May til að fresta útgöngunni um nokkra mánuði til að reyna að forðast útgöngu án samnings.