Næstu verkfallsaðgerðir félagsmanna VR og Eflingar sem starfa á hótelum og hjá hópbifreiðafyrirtækjum munu fara fram á fimmtudag og föstudag. Fundum milli viðsemjenda var frestað bæði í gær og í fyrradag vegna óvissu um framtíð WOW air. VR og Efling höfnuðu því að fresta verkfallsaðgerðunum vegna óvissunnar, sem formaður Samtaka ferðaþjónustunnar harmar. Fréttablaðið greinir frá.
„Okkur hefði ekkert fundist óeðlilegt að viðsemjendur okkar tækju tillit til þessarar gríðarlega viðkvæmu stöðu. Ef WOW fellur, þá er það auðvitað svakalegt högg fyrir greinina sem nú þegar er í vandræðum,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF, í samtali við Fréttablaðið.
Hún telur það ábyrgðarlaust að semja um launahækkanir á þessum tímapunkti. „Ég heyri miklar áhyggjur félagsmanna í öllum geirum greinarinnar úti um allt land. Þótt verkföllin séu bundin við fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hefur þetta áhrif á alla.“