Samkvæmt umfjöllun í nýjasta tölublaði Mannlífs hefur Arion banki farið fram á að Sveinn Andri Sveinsson lögmaður verði settur af sem annar af skiptastjórum yfir þrotabúi WOW air vegna vanhæfis. Arion banki er einn stærsti kröfuhafi þrotabúsins. DV.is greinir frá.
Þetta staðfesti Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, í samtali við Mannlíf. Ástæðan fyrir því að bankinn telur Svein Andra vanhæfan er sú að Arion banki er stærsti kröfuhafinn í þrotabúi tölvufyrirtækisins Data Cell, en Sveinn Andri er einnig skiptastjóri þess. Haraldur segir þess vegna hafa skapast ágreining.