Vilja að sþ lýsi stríði á hendur isis

Frakkar hafa í bígerð að leggja fram ályktun í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um stríðsyfirlýsingu gegn hryðjuverkasamtökunum Isis að því er breska dagblaðið The Independent greinir frá í dag. 

Árásirnar í París og sprenging rússnesku farþegaþotunnar yfir Sínaí skaga á dögunum hefur sameinað ríki öryggisráðsins í andstöðunni við Isis og því er talið líklegt að ályktunin verði samþykkt.

Á fréttavef Vísis í morgun er sagt að málið verði tekið fyrir jafnvel strax í dag eða um helgina. Hingað til hafa Rússar og Kínverjar verið taldir ólíklegir til að fást til að lýsa yfir stríði við Isis en atburðir síðustu vikna, segir þar, eru sagðir hafa breytt því, en kínverskur gísl var tekinn af lífi af Isis mönnum á dögunum.