Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segi af sér. Þetta kemur fram í ályktun frá sambandinu.
Í ályktunninni segir að ungir jafnaðarmenn fordæmi harkalega ummælin sem innviðaráðherra hafi látið falla í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra BÍ. Einnig fordæma UJ svör Ingveldar Sæmundsdóttur, aðstoðarkonu Sigurðar Inga, sem þvertók fyrir ummæli Sigurðar um helgina. Auk þess er minnst á kosningbaráttu Framsóknar í borgarstjórnarkosningum 2014, útlendingastefnu stjórnvalda og viðbrögð Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra.
Ályktun Ungra jafnaðarmanna vegna rasískra ummæla innviðaráðherra í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna
Ungir jafnaðarmenn fordæma harkalega þau ummæli sem innviðaráðherra lét falla í flokkaboði Framsóknarflokksins í tengslum við Búnaðarþing 2022. Ummælin beindust að framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands, Vigdísi Häsler, og fólu í sér niðrandi orðaval um húðlit hennar.
Ungir jafnaðarmenn standa með Vigdísi Häsler, trúa hennar frásögn og annarra starfsmanna Bændasamtakanna og krefjast afsagnar innviðaráðherra sem sýndi með orðum sínum rasískt viðhorf sem á ekki að viðgangast í íslensku samfélagi. Ungir jafnaðarmenn fordæma jafnframt framkomu aðstoðarmanns ráðherra í málinu sem neitaði því að ummælin hefðu fallið, veitti fjölmiðlum misvísandi upplýsingar og gerði þar með lítið úr ummælunum og upplifun Vigdísar sem ummælin beindust að.
Óumflýjanlegt er að setja ummælin í samhengi við rasíska kosningabaráttu Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningum árið 2014 og tilraunir ríkisstjórnarinnar til að herða enn á útlendingalöggjöf í landinu. Þá furða Ungir jafnaðarmenn sig á framgöngu forsætisráðherra, sem fer með jafnréttis- og mannréttindamál í ríkisstjórn, en í dag vék hún sér undan því að svara spurningum um hvort ummæli innviðaráðherra samræmdust siðareglum ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi. Það eru vonbrigði að forsætisráðherra Íslands taki ekki afdráttarlausa afstöðu gegn rasisma.
Fyrir hönd Ungra jafnaðarmanna,
Ragna Sigurðardóttir, forseti