Vilja að may hætti við brex­it

Tug­ir breskra tón­list­ar­manna, þar á meðal Ed Sheer­an og Rita Ora, rita opið bréf til Th­eresu May, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, í breska dag­blaðið Obser­ver þar sem þeir skora á hana að hætta við út­göngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Fram kem­ur í frétt AFP að opna bréfið sé skipu­lagt af tón­list­ar­mann­in­um Bob Geldof sem beitti sér gegn því að Bret­land gengi úr Evr­ópu­sam­band­inu í aðdrag­anda þjóðar­at­kvæðis­ins 2016 þar sem meiri­hluti kjós­enda samþykkti út­göng­una. Haft er eft­ir Geldof að hann vilji annaðhvort end­ur­taka þjóðar­at­kvæðið eða vera áfram inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins.

Tón­list­ar­menn­irn­ir lýsa því yfir að út­ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu sé „al­gert brjálæði“ og að hún ógni bresk­um tón­list­ariðnaði. Er May hvött til þess að end­ur­skoða þá ákvörðun að Bret­land skuli ganga úr sam­band­inu í sam­ræmi við niður­stöðu þjóðar­at­kvæðis­ins.

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2018/10/07/vilja_ad_may_haetti_vid_brexit/