Talið er að um fjögur þúsund manns hafi komið saman á Austurvelli til að taka þátt í mótmælunum Lýðræði ekki auðræði. Þar var þess krafist að Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra myndi segja af sér embætti. Var þetta aðalkrafa mótmælenda sem fjölmenntu á Austurvöll um klukkan fjórtán í dag.
Á vef Fréttablaðsins kemur fram að Katrín Oddsdóttir hafi séð um fundarstjórn. Þeir sem ávörpuðu fundinn voru Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Atli Þór Fanndal blaðamaður, Þórður Már Jónsson lögmaður og Auður Anna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.
Kröfur mótmælenda eru eftirfarandi:
I. Sjávarútvegsráðherra segi tafarlaust af sér embætti.
II. Alþingi lögfesti nýja og endurskoðaða stjórnarskrá sem landsmenn sömdu sér og samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012—Að sjálfsögðu með því auðlindaákvæði sem kjósendur samþykktu.
III. Arður af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna renni í sjóði almennings til uppbyggingar samfélagsins og til að tryggja mannsæmandi lífskjör allra.