Vilja að brottvísunum úr landi verði alfarið hætt

Hóp­ur flótta­fólks á Íslandi kom sam­an í morgun fyrir utan Útlend­inga­stofn­un­ í Hafnar­f­irði til þess að mót­mæla því að fólki sé vísað úr landi og aðstæðum flótta­fólks í flóttamannabúðunum á Ásbrú. Mótmælin voru skipulögð af hópnum Refugees in Iceland. Mbl.is greinir frá.

Kröfur hópsins eru í fimm liðum. Hóp­ur­inn fer fram á að brottvís­un­um úr landi verði al­farið hætt, að allt flótta­fólk fái áheyrn sinna mála í kerfinu, að flóttafólk á Íslandi fái atvinnu­leyfi, að flóttafólk fái jafn­an aðgang að heilbrigðisþjónustu og að flótta­manna­búðunum á Ásbrú verði lokað.

Í lýsingu á mótmælunum í viðburði á Facebook segir að flóttafólk hafi óskað eftir fundi með stjórnvöldum og að hlustað verði á kröfur þeirra, en að eina svarið sem þau hafi fengið verið þögn.

Mótmælin halda nú áfram við aðalskrifstofu Útlendingastofnunar að Dalvegi í Kópavogi. Mótmæl­in hafa farið friðsam­lega fram og hef­ur lög­regl­an, sem var og er viðstödd mótmælin til að sinna eftirliti, ekki haft af­skipti af mót­mæl­end­um. Einn mótmælendanna í Hafnarfirði gekk á milli lögreglumannanna og afhenti þeim rósir. Flestir lögreglumannanna festu rósirnar í klæðnað sinn og skörtuðu þeim á meðan mótmælunum stóð.

Refugees in Iceland stóð einnig fyr­ir mót­mæl­um í brott­far­ar­sal flug­stöðvar Leifs Ei­ríks­son­ar í síðasta mánuði. Þá beindust mót­mæl­in gegn Icelanda­ir, sem hef­ur aðstoðað við brott­vís­an­ir flótta­fólks.

Tvær sjálfsvígstilraunir með skömmu millibili

Fréttablaðið greindi frá því í gær að flóttamaður sem hefur dvalið að Ásbrú hafi reynt að svipta sig lífi. Í stað þess að aðstoða manninn hafi lögreglan handtekið hann blóðugan og buxnalausan, að því er íbúar í grenndinni vitnuðu til um.

Refugees in Iceland vöktu athygli á sjálfsvígstilrauninni á Facebook síðu sinni og sömuleiðis annarri sjálfsvígstilraun sem átti sér stað um liðna helgi. Segir hópurinn óbærilegt að dvelja í flóttamannabúðunum á Ásbrú og að þau þarfnist hjálpar.