Vilja að almenningur tileinki sér minni plastnotkun allt árið - plastaþonið hefst á morgun

Í ár er umhverfisátakið Plastlaus september haldið í þriðja skipti. Aðstandendur átaksins segja að viðtökurnar hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum og segja þau að átakið hafi náð enn meiri útbreiðslu í ár.

„Við sem stöndum að Plastlausum september finnum fyrir því að samfélagið er tilbúið fyrir svona átak og almenningur er jákvæður í garð þess.
Heyrist nú oft að Plastlaus september ætti vera allt árið en það er einmitt markmiðið með átakinu að almenningur tileinki sér minni plastnotkun allt árið um kring. Það er frábært að sjá hvernig fyrirtæki og stofnanir eru byrjuð að tengja sig við átakið og auglýsa að þau séu að taka þátt í Plastlausum september.
Við bendum á að þótt september sé að klárast þá er Plastlaus september virkur á samfélagsmiðlum allt árið,“ segir Heiður Magný hjá Plastlausum september.

Umhverfisstofnun og Plastlaus september munu standa fyrir Plastaþon um helgina. Um er að ræða tveggja daga hugmyndasmiðja fyrir alla þá sem brenna fyrir umhverfismál og nýsköpun. Í hugmyndasmiðjunni munu þátttakendur mynda teymi og vinna saman að lausnum við þeim áskorunum sem heimurinn stendur frammi fyrir varðandi ofnotkun á plasti.

Allir geta tekið þátt í Plastaþon. Þátttaka er ókeypis og verða vegleg verðlaun í boði fyrir sigurvegarann. 

„Við erum að drukkna í plasti! Í Plastaþoni færðu tækifæri til að hitta fjölbreyttan hóp af fólki og skapa nýstárlegar lausnir undir handleiðslu sérfræðinga. Að auki færðu að vita allt um plast, nýsköpun og hönnun,“ segir á heimasíðu umhverfisstofnunar um Plastaþonið.

Plastaþon verður haldið dagana 27.-28. september 2019 hjá Umhverfisstofnun, Suðurlandsbraut 24. Skráning og frekari upplýsingar um Plastaþonið má nálgast hér.