Vilja 95% lán fyrir betur setta

Ásdís Valsdóttir, löggiltur fasteignasali hjá Húsaskjól, segir tillögur Eyglóar Harðardóttur, húsnæðismálaráðhera vera frábærar; þær hjálpi fleira fólki að komast úr leigu og í sitt eigð húsnæði.

Þetta kom fram í fasteignaþættinum Afsali á Hringbraut á fimmtudagskvöld. Þar velti Ásdís því fyrir sér hvort þingmenn þurfi almennt að kynna sér fasteignamálin betur áður en þeir fara að gagnrýna þær tillögur sem lagðar hafa verið fram á þingi. Ljóst sé að það er Alþingi sem þurfi að grípa í taumana til að liðka fyrir fasteignakaupum þeirra sem vilja komast úr leiguhúsnæði.

Í þætti gærkvöldsins var einkum rætt um hlutskipti þess fólks sem vill komast úr leigu í sitt eigið húsnæði. Þar var meðal annars rætt um bandarísku leiðina, en vestan hafs er í auknum mæli farið að lána allt að 95% fyrir fyrstu kaupum, ef greiðslugeta kaupenda er góð. Þetta þýði að ekki séu allir settir undir sama hattinn, heldur er lánshæfismat skoðað hjá hverjum og einum og þeir sem geti sýnt að þeir eru skilvísir greiðendur, fái hærri lán. Þannig séu margir vestra að komast úr leiguhúsnæði í fyrstu fasteignakaupin.

Á Íslandi gildi hins vegar sömu reglur fyrir alla. Leigumarkaðurinn sé sprunginn og nánast ótækt að leggja fyrir fasteignakaupum á sama tíma og verið sé að greiða háa leigu. Þetta þýði að fjölmargir komast ekki úr leiguhúsnæði í sín eigin kaup, þótt leigugreiðslur séu oft á tíðum hærri en greiðsla húsnæðislána.

Guðrún Antonsdóttir, löggiltur fasteignasali hjá Garún fasteignamiðlun sagði í þættinum að séreignarsparnaðurinn fyrir fyrstu fasteignakaupin þyrfti að nýtast betur, en þakið á úttektinni sé of lágt.  

Þáttinn Afsal  má nálgast í heild sinni á hringbraut.is, svo og styttri klippur úr honum.