Vilja 30% launahækkun eins og aðrir

Félagsmenn í SFR, stéttarfélagi í almannaþjónustu, sætta sig ekki við minni launahækkanir en úrskurðir gerðardóms fólu í sér, eða sem nemur allt að 30% launahækkun.

Þórarinn Eyfjörð, framkvæmdastjóri félagsins segir þá til í verkfallsaðgerðir og á von á að atkvæðagreiðsla um það fari fram á næstunni, en ekki komi til greina að semja um minna en Gerðardómur úthlutaði hjúkrunarfræðingum fyrr í sumar: \"Gerðardómur er ákveðin fyrirmynd að þeim samningum sem að eftir á að gera á vettvangi ríkisins, það er alveg klárt mál. Ríkið samdi fyrir 8 mánuðum um launahækkanir til ákveðinna stétta á bilinu 27-30%. Gerðardómur hann kemst að þeirri niðurstöðu að hjúkrunarfræðingar að þeir eigi að fá 30% á þessu samningstímabili en svo segir ríkið við okkur sko nei, nei þið eigið bara að fá 17, kannski 20%. Það bara er ekki til umræðu og þessi fyrirliting sem kemur fram í afstöðu ríkisins til þessara starfsmannahópa með þessari afstöðu hún er raunverulega ekki líðandi,“ segir Þórarinn í samtali við visir.is í dag.  

SFR, Stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands og Landssamband lögreglumanna hafa átt í sameiginlegum kjaraviðræðum við ríkið síðustu mánuði. Kjarasamingar þeirra hafa verið lausir síðan í maí og í júní var deilunni vísað til Ríkissáttasemjara. Ekkert þokast hins vegar í samkomulagsátt og hafa sjö fundur verið haldnir hjá Ríkissáttasemjara og ber enn mjög mikið á milli deiluaðila. 

Þórarinn segir að baráttufundur félagsmanna verði haldinn í Háskólabíói klukkan fimm á morgun. Trúnaðarmannaráð SFR fundar svo á miðvikudaginn og þar verður tekin ákvörðun um hvort að farið verði í atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun: \"Fólk er bara núna tilbúið til að fara í baráttu. Okkar kannanir sýna það að það er 85-90% stuðningur við það að fara bara í átök og reyna að koma vitinu fyrir ríkisvaldið,“ segir Þórarinn Eyfjörð við visir.is í dag.