Vilhjálmur stefnir salek-hópnum

Verkalýðsfélag Akranss leggur fram stefnu á hendur SALEK-hópnum fyrir Félagsdómi í dag, en Vilhjálmur Birgisson, formaður félagsins degir samkomulagið hópsins andstætt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Búið sé fyrirfram að ákveða hvað þeir megi semja um.
 
Fram kemur í fréttum RÚV í morgun að trúnaðarráð Verkalýðsfélagsins hafi ákveðið í samráði við lögmenn félagsins að stefna öllum aðilum SALEK samkomulagsins, sem undirritað var 27. október síðastliðinn. Vilhjálmur segir við RÚV að það sé mat félagsins að samkomulagið skerði samningsrétt og frelsi stéttarfélaganna. Það sé andstætt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur þegar fyrirfram sé búið að ákveðan hvað megi semja um. 
 

\"Við ákváðum bara þegar við sáum orðið líka í hverju samkomulagið var fólgið að láta á það reyna fyrir félagsdómi enda var það líka þannig að þegar við mættum til ríkissáttasemjara til fundar vegna kjarasamnings, sem við eigum núna við launanefnd sveitarfélaga eða Samband íslenskra sveitarfélaga, þá var okkur tjáð bara fyrirfram hvað það væri sem væri til skiptanna enda hefði slíkt verði ákveðið inni í rammasamkomulagi SALEK hópsins. Það er að mati okkar algerlega andstætt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur,\" sagði Vilhjálmur í morgun um það leyti sem hann var að búa sig undir að afhenda formanni Félagsdóms stefnuna.