Vilhjálmur: „26 fjölskyldur eru í fullkominni angist“

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, fer hörðum orðum um Heimavelli á Facebook síðu sinni í dag. Þar sakar hann leigufélagið um siðlaust athæfi.

„Eins og ég hef fjallað um þá framkvæmdi leigufélagið Heimavellir ótrúlegan gjörning og siðlaust athæfi sem laut að því að selja bæði Holtsflöt 4 og Eyrarflöt 2 með þeim afleiðingum að nánast 26 fjölskyldur eru í fullkominni angist og kvíða vegna þess að þau verða húsnæðislaus á næstu mánuðum.“

Hann segir Heimavelli hafa keypt íbúðirnar af Íbúðalánasjóði á sérkjörum, undir þeim formerkjum að tryggja ætti öflugan og tryggan leigumarkað á Akranesi. Annað hafi hins vegar komið á daginn.

„En nú örfáum árum síðar hafa Heimavellir pakkað saman og selt nánast allar eignir sem þeir fengu á sérkjörum frá Íbúðalánasjóði á sínum tíma.“

Hann segir að samkvæmt sínum upplýsingum hafi átján íbúðir að Holtsflöt 4 verið seldar á samtals 582 milljónir króna. Það sé langt undir fasteignamat. „Sem gerir að meðaltali rétt rúmar 32 milljónir á íbúð! En rétt er að geta þess að fasteignamat fyrir árið 2020 var rétt tæpar 860 milljónir.“

Vilhjálmur tekur fram að salan hafi verið 276 milljónum króna undir fasteignamati, eða 47 prósent. Heimavallir hafi einnig selt átta íbúðir á Eyrarflöt 2 til sömu aðila á 190 milljónir, eða 23,7 milljónir að meðaltali á íbúð, meðan fasteignamatið sé 260 milljónir. Verðið sé því 37 prósentum undir fasteignamati.

„Með öðrum orðum þá seldu Heimavellir þessum nýju eigendum Eyrarflöt 2 og Holtsflöt 4 þessar tvær blokkir 346 milljónum undir fasteignamati. En rétt er að geta þess að Holtsflöt 4 var byggð árið 2007 og er meðaltals fermetri á íbúð á Holtsflötinni 123 fermetrar. Eyrarflöt 2 var byggð árið 2004 og meðalfermetri á íbúð 78,6 fermetrar.“

Hann furðar sig á því að Íbúðalánasjóður hafi virst blessa söluna á Eyrarflötinni, þar sem kvaðir hafi verið á um að óheimilt væri að hafa eigendaskipti á íbúð sem hvílir lán til leiguhúsnæðis, nema til komi saþykki stjórnar Íbúðalánasjóðs. Því sé ekki annað að sjá en að sjóðurinn hafi heimilað söluna.

„Það er algjörlega með ólíkindum að Heimavellir skuli hafa vogað sér að selja þessar eignir langt undir fasteignamati án þess að bjóða leigjendum kaup á íbúðunum með sama gríðarlega afslætti og þarna átti sér stað. Siðleysið og vanvirðingin gagnvart sínum leigjendum er algert og það er eins og forsvarsmenn Heimavalla hafa algerlega gleymt þeirri staðreynd að á bakvið þennan gjörning eru manneskjur og barnafólk sem þarf að þjást og lifa við mikinn kvíða við að finna sér og sínum þak yfir höfuðið. Ég ítreka enn og aftur það sem ég hef áður skrifað um þetta mál hafi Heimavellir algera skömm fyrir þessa ómanneskjulegu framkomu gagnvart grandalausum leigjendum!“