„Formaður átti svo sannarlega von á því að einn ríkasti maður Íslands myndi í ljósi þess að Hæstiréttur var búinn að staðfesta að Hvalur hafði hlunnfarið starfsmenn sína um gríðarlegar upphæðir, lagfæra og endurgreiða öllum starfsmönnum samkvæmt dómi Hæstaréttar.“
Þetta segir Þetta segir Vilhjálmur Birgisson Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti ASÍ í pistli á Hringbraut.
Vilhjálmur segir að starfsmenn Hvals hafi ekki haft hugmynd um að verið væri að hlunnfara þá en það var ekki fyrr en einn starfsmaður sem tók að sér trúnaðarmannastarf að hann leitaði til Verkalýðsfélags Akraness vegna grunsemda um að þessa sérstöku greiðslu sem getið væri um í ráðningarsamningum vantaði inn í launin. VLFA fór að skoða greiðslur til starfsmanna og sá að þessa greiðslu vantaði sem og vikulegan frídag. VLFA fór með málið fyrir dóm og vann málið. Segir Vilhjálmur að hann hafi þá búist við að þetta yrði leiðrétt. Hvalur tók þá upp varnir á ný og héldu fram að vegna aðgerðarleysis og tómlætis á að sækja rétt sinn ættu þeir ekki kröfu á fyrirtækið. Hafði Hvalur betur þar fyrir dómi. Segir Vilhjálmur að Hvalur hf hafi einnig hafnað að láta félagið fá tímaskriftir og önnur gögn sem skiptu máli til að útbúa kröfu á hendur fyrirtækinu.
Vilhjálmur segir:
„Nei það datt einum ríkasta manni á Íslandi ekki til hugar heldur hélt hann áfram að reyna að koma sér hjá því að greiða eftir ráðningarsamningum og ákvæðum kjarasamninga.
Í ljósi þess að núna gat Hvalur hf. ekkert borið fyrir sig að fyrirtækið ætti ekki að greiða þessa sérstöku greiðslu samkvæmt ráðningarsamningum starfsmanna og svokallaðan vikulega frídag þá tók fyrirtækið upp aðrar varnir í málinu sem lutu að aðgerðaleysi og tómlæti starfsmanna við að sækja sinn rétt,“ segir Vilhjálmur og bætir við að lokum:
„Já nú skyldi reynt af hálfu Hvals hf. til að finna nýja leið til að komast hjá því að greiða hinum 100 starfsmönnunum sem höfðu verið hlunnfarnir um þessa sérstöku greiðslu og sinn vikulega frídag eins og Hæstiréttur var búinn að segja með dómi sínum að starfsmenn ættu rétt á.“
Hér má lesa pistilinn í heild sinni.