Vilhjálmur hjólar í dómsmálaráðherra og segir lögreglunni varla treystandi fyrir núverandi valdheimildum

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður gagnrýnir harðlega fyrirhugað frumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu í nýlegri skoðanagrein sem ber nafnið „Jón Spæjó“ og birtist á Vísi í gær. En hann telur það ótækt að veita lögreglu auknar valdheimildir þegar henni sé ekki treystandi fyrir þeim sem hún hefur núþegar.

Vilhjálmur telur tímasetningu frumvarpsins alls enga tilviljun þar sem „dómsmálaráðherra sprettur fram eins og stálfjöður í fjölmiðlum vopnaður nýju lagafrumvarpi um forvirkar rannsóknarheimildir. Hann segir að frumvarpið sé tilbúið í dómsmálaráðuneytinu. Það eigi bara enn eftir að líta dagsins ljós. Hvernig sem það kemur heim og saman. Hugsanlega þolir frumvarpið bara ekki dagsljósið.“

Þetta geri hann eftir að hafa verið sleginn yfir fréttum lögreglu um yfirvofandi hryðjuverkaógn á Íslandi. Vilhjálmur telur að um of mikla tilviljun geti verið að ræða:

„Dómsmálaráðherra segir að lagafrumvarpið sé nákvæmlega það sem kallað hafi verið eftir. Tímasetningin sé tilviljun. Einmitt. Við erum öll fífl. Lagafrumvarp samið af lögreglu fyrir lögreglu til þess að njósna um borgarana eftir geðþótta lögreglu án þess að grunur sé um afbrot og íþyngjandi eftirlits dómstóla. Nafnið er reyndar snilld. Frumvarp um heimildir til afbrotavarna. Hver kaupir það ekki? Afbrotavörn. Nafnið breytir samt engu. Þetta er bara nýtt orð yfir sama skítinn. Réttinn til að njósna. 1984 eftir Orwell.“

Ólöf Tara Harðardóttir, einkaþjálfari og meðlimur bárttuhópsins Öfgar, segir á Twitter að hún sér hjartanlega sammála Vilhjálmi sem er eitthvað sem hún bjóst alls ekki við að vera á lífsleiðinni.

Ekki nýtt af nálinni

Vilhjálmur segir það ekki nýja hugmynd að setja fram að kröfu um löggjafi veiti lögreglu heimild til þess að njósna um fólk án aðkomu dómstóla og gruns um afbrot. „Hún hefur margoft komið fram áður og yfirleitt sem svar við kalli lögreglunnar ,,Úlfur, Úlfur”. Í dag eru það hryðjuverk. Á morgun stórhættulegir blaðamenn sem ógna þjóðaröryggi með fréttaflutningi um landið og miðin og fyrir 10 árum voru það Hells Angels.“

En Vilhjálmur segir að sú ákvörðun hafi leitt til þess að forsprakki samtakanna hafi verið látinn „rotna“ í gæsluvarðhaldi við ómannúðlegar aðstæður í hegningarhúsinu við Skólavörðustíg í næstum því sex mánuði.

Þá segir Vilhjálmur einnig að lögreglan hafi núþegar víðtækar heimildir til þess að að beita borgaranna þvingunarráðstöfunum:

"Í þágu rannsóknar á sakamálum s.s. símahlerun, herbergjahlustun, skoðun á rafrænum gögnum, staðsetningu á grundvelli símaganga, beitingu eftirfararbúnaðar o.s.frv. Í dag eru þessar aðgerðir lögreglu háðar samþykki og sæta eftirliti dómstóla eins og eðlilegt er í réttarríki. Því má alls ekki breyta,“ skrifar Vilhjálmur.